Dans á rósum
02.09.2010 19:30:17 / rosabjorg

Framkvæmdir

Mikið er ánægjulegt að sjá hvað fólk hefur tekið vel við sér að nota "allir vinna" átakið. Hér í hverfinu er verið að gera við fjöldann allan af húsum, mála, skipta um þak, laga sprungur og margt fleira. Ég væri alveg til í að fara í framkvæmdir á okkar blokk en sé ekki fram á að samstaða náist um að byrja á því verkefni. Ég læt mér því nægja framkvæmdir innandyra og núna standa yfir flutningar á milli herbergja. Kolbrún Ýr fær loksins sitt eigið herbergi þar sem hún fer í minna herbergið, Daníel Örn og Bergur Þór verða síðan saman í hjónaherberginu og ég og Jói í "herbergi" sem við ætlum að búa til í stofunni. Stofan er frekar rúmgóð svo við getum alveg sett upp vegg og skipt henni niður. Hins vegar erum við með nóg af dóti til að fylla stofuna eins og hún er núna og hef ég því verið að pakka niður í kassa því sem kalla mætti óþarfa. Nú verða bara nauðsynjar uppi. Þetta gengur frekar hægt enda er ég  nánast ein í þessu og orkan ekki alltaf til staðar. Jói vinnur og vinnur alla fimmtudaga, föstudaga, laugardaga, sunnudaga og mánudaga frá 11:30 til  22:00, þ.e.a.s. ef ég tek ferðatíma í Bláa lónið með.

Lífið er ljúft, krakkarnir eru frábærir, duglegir og yndislegir. Jói er mín stoð og stytta. Hamingjan er allsráðandi hjá okkur þessa dagana.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2010 09:38:45 / rosabjorg

Til fyrirmyndar

Fyrirmyndir mínar eru margar. Þessar fyrirmyndir eru ekki endilega frægar eða vel þekktar heldur fólk sem hefur snert við mér í hversdagsleikanum. Hefur tekist  á við lífið og tilveruna á þann hátt að mér hefur fundist mikið til koma. Vinkonur mínar t.d. eru ótrúlegar og tek ég mér þær til fyrirmyndar á mismunandi sviðum. Ein er ótrúlega skipulögð og nær að halda fullkomnu jafnvægi milli sjálfrar sín, barnanna sinna og heimlislífsins. Aðra tek ég mér sérstaklega til fyrirmyndar þegar kemur að foreldrahlutverkinu, hún er ótrúlega hugmyndarík og framtakssöm þegar kemur að uppeldi. Hún hefur endalausan tíma og orku. Þriðja er bein í baki og stendur  ótrúlega vel með sjálfri sér, er sífellt að takast á við samskipti og leysir úr þeim á undraverðan hátt. Hef dregið ótrúlega mikinn lærdóm af samskiptum mínum við hana. Foreldrar mínir eiga sögu og samband sem ég hef til fyrirmyndar í mínu lífi. Þau eru búin að vera gift í rúmlega 40 ár, eiga fjögur börn, hafa þurft að ganga í gegnum erfiðleika og veikindi með okkur öll og eru stuðningsnet okkar allra. Ég er ofboðslega heppin að eiga svona frábæra foreldra. Systkini mín eru líka mínar fyrirmyndir, aðrir vinir mínir, mágkonur, frænkur og frændur. Ég held ég geti fundið eiginleika í öllum sem mér finnst vera til fyrirmyndar. Hvernig fólk bregst við erfiðum aðstæðum er líka eitthvað sem mér finnst vera til fyrirmyndar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2010 10:19:34 / rosabjorg

Ekki nógu dugleg

Ef það er eitthvað sem ég er ekki nógu dugleg að gera að þá er það að gera eitthvað fyrir sjálfa mig. Allir dagar fara í að sinna krökkunum og þegar þau sofna á ég smá tíma fyrir sjálfa mig. Þessi tími er ennþá styttri á sumrin þar sem sólin ruglar svefninn og krakkarnir fara seinna að sofa en venjulega. Síðustu dagar hafa þó verið óvenjulegir. Ég fór á föstudaginn síðasta með Signýju og Söru á Sex and the city 2 og út að borða á Fridays. Eftir bíóið sátum við svo heillengi og spjölluðum. Á þriðjudaginn fór ég í bíltúr með Elín Auði og fengum við okkur ís. Á miðvikudaginn fór ég með Sesselju í bíltúr og endaði með því að við fengum okkur líka ís. Á miðvikudaginn næsta á ég svo bíómiða á Eclipse. Þetta útstáelsi er að nálgast það sem ég er búin að gera það sem af er ári. Ég er með pínu samviskubit, engin ástæða þó þar sem Jói getur alveg séð um krakkana. Ofboðslega hef ég gott af þessu og þyrfti ég að vera duglegri að gera eitthvað fyrir sjálfa mig.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2010 14:07:38 / rosabjorg

einu sinni á ári

Nú er tæpt ár síðan ég bloggaði síðast. Þetta ár er búið að fljúga áfram enda mikið að gera með stóra fjölskyldu á litlu heimili. Bergur kom í heiminn á þeim góða degi 20.09.2009 og er hann algjört himnaljós. Hann er ótrúlega meðfærilegur og góður, stór og stæltur strákur. Hann er alveg ný árgerð hvað stærð og þyngd varðar en mér finnst hann örlítið líkari Kolbrúnu heldur en Daníel þó svo að hann svipi síðan meira til pabba síns heldur en mín. Daníel og Jói eru náttúrulega steyptir í sama mót og með hverju öri verða þeir líkari og líkari.

Álagið er mikið að vera með þrjú börn en ánægjulegt engu að síður. Líkaminn hefur ekki höndlað þetta álag eins vel og ég hefði óskað en ég hef verið með dofa í hægri hlutanum núna í hátt í fjóra mánuði. Ég fór í mri-rit fyrir mánuði síðan og miðað við fyrri rit sem sýndu fjöldann allan af bólgum í heila að þá var orðinn töluverð breyting. Skemmtilega loðið þetta læknamál. Í þessum nýju bólgum var síðan virkni sem sést þar sem skuggaefnið safnast saman í þeim bólgum. Þessi virkni er þá þessi dofi í líkamanum hjá mér. Þessi dofi lýsir sér eins og ég sé nýkomin frá tannlækni nema að deyfingin er í hægri hliðinni. Öll snerting er skrýtin og það að þurrka mér með handklæði er virkilega óþægilegt. Mátturinn í handleggnum á mér er að mestu góður en þegar ég verð verulega þreytt á hann það til að vilja bara sofa. Þreytan er síðan stór hluti af þessu öllu saman og eru ákveðnir tímar að deginum til sem ég á erfitt með að halda mér vakandi. Vegna þessa alls var ákveðið að ég færi í sterameðferð sem ég og fór í fyrir tveimur vikum síðan. Ég fór þá þrjá daga í röð upp á Landsspítala og fékk sterablöndu í æð í tvo og hálfan tíma. Þessir sterar hafa skrýtin áhrif á geðið í manni, án nokkurrar sýnilegarar ástæðu grét ég, hefði getað þó lent í að verða ofboðslega reið en slapp blessunarlega við það. Krakkarnir voru ofboðslega góð við mig þennan tíma og hefði ég alls ekki getað komist í gegnum þetta nema vegna þess að mamma og pabbi hjálpuðu mér þegar Jói var í vinnunni. Jói er síðan búinn að vera æðislegur í þessu öllu saman. Margir hefðu látið sig hverfa en hann stendur alveg við bakið á mér.

Ég er svo þakklát fyrir lífið og tilveruna og þrátt fyrir allt að þá er ég heppin.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 18:02:09 / rosabjorg

Hápunktar sumarsins

- Kolbrún Ýr -
Missti fyrstu tönnina heima hjá ömmu og afa í Garðinum.
Var í skólagörðunum. Fannst þó ekki skemmtilegt að reyta arfa en var rosalega stolt þegar hún fékk hluta af uppskerunni. Ekki allt komið ennþá heim í hús.
Sést annars varla heima hjá sér, rýkur út í góða veðrið um leið og hún getur og kemur heim rétt svo til að borða og sofa.
Er búin að vera rosalega dugleg að hjálpa mömmu sinni. Sótti til dæmis bróður sinn reglulega á róló í sumar, alein (eða með vinkonum sínum).
Hefði viljað fara í ferðalög, sofa í fellihýsi eða tjaldi. Ekki nóg að fara bara eina helgi í sumarbústað.

- Daníel Örn -
Fór nánast daglega á róló í sumarfríinu sínu. Thelma Líf var oftar en ekki með.
Veit ekki hvað það þýðir að hlýða og gat því ekki fengið að vera eins mikið einn úti að leika eins og Kolbrún á þessum aldri. Daníel fer sínar eigin leiðir og týndist því oftar en einu sinni í sumar, skilaði sér þó alltaf en mömmuhjartað þolir þetta illa.
Skoðaði mikið prjónablöð með mömmu sinni og valdi af kostgæfni risaeðlupeysu og húfu sem var prjónuð á nóinu. Nú vill hann bara meira, sokka, vettlinga og fleiri peysur og húfur.
Daníel kom marga daga í röð heim af róló með nýjan plástur og var hruflaður mestan hluta af sumri.

- Ég -
ólétt, ólétt, ólétt. Hvað get ég sagt meir.
Meðgangan hefur gengið svona la la, líkaminn á mér er ekki alveg gerður til að ganga með börn og mun ég ekki leggja á hann að gera þetta aftur. Barnið er búið að vera skorðað síðan á sirka 32. viku (er komin núna rúmar 35 vikur) og finnst mér eins og ég gangi með höfuðið á milli fótanna. Gönguleiðin upp á róló er mér erfið og hefur því verið kærkomin hjálp að Kolbrún hefur getað sótt og farið með Daníel þangað. Ég hef ekki getað hlaupið um hverfið og leitað að Daníel svo hann hefur oftar en ekki þurft að hanga hérna heima hjá mér í staðinn fyrir að vera úti að leika sér.
Mamma og pabbi hafa reynst mér ótrúlega vel í sumar og hjálpað mér eftir megni. Mamma var í fríi á sama tíma og Daníel Örn og aðstoðaði hún mig mikið með hann.

- Jói -
Vinna, vinna, vinna.
Hann hefur verið duglegur að fara á æfingar í sumar og er að komast í ágætis form. Krakkarnir hafa fengið að fara með honum og verið þá í barnagæslunni á meðan og finnst þeim það rosa gaman.
Núna hefur breyst hjá honum vinnan og er hann í bláa Lóninu og Hreyfingu fyrst og fremst en hefur í líka verið að nudda hjá 365. Hann er samt að fara að hætta hjá 365 enda að fara í fæðingarorlof.

Það styttist annars biðin eftir barninu. Ég get ekki beðið eftir því að meðgangan klárist.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2009 11:49:34 / rosabjorg

fyrsta helgin í júlí

Við notuðum tækifærið fyrst Jói var búinn að biðja um frí í vinnunni að skella okkur í sumarbústað sem er í eigu fjölskyldu hans Jóa. Bústaðurinn er í Svínadal svo það var stutt fyrir okkur að skjótast inn á Akranes þar sem írskir dagar voru haldnir. Við fórum snemma af stað á föstudeginum og voru krakkarnir alveg rosalega spenntir yfir því að fara í ferðalag. Þeim finnst fátt skemmtilegra en að fara í húsbústað (eins og þau kalla sumarbústað) eða útilegu. Við fórum beint upp í bústaðinn og komum okkur fyrir og fórum svo inn á Akranes í sund. Siggi og Harpa buðu okkur í grill um kvöldið og var veðrið svo frábært að það var hlýrra úti en inni.Harpa hafði fengið þrjú borð/bekki hjá leikskólanum svo við gátum borðað úti í garði. Olga, Thelma Líf, Alexía Líf og Brynjar Magnús komu líka. Olga og stelpurnar gistu svo hjá Sigga og Hörpu en Brynjar og Kristján Már í fellihýsinu sem mamma og pabbi eiga. Mamma og pabbi komu upp á Akranes en fóru svo með okkur í bústaðinn og gistu hjá okkur. Seint um kvöldið var svo kvöldvaka á Akratorgi þar sem Páll Óskar var aðalnúmerið. Hann lenti nú reyndar í smá veseni með rafmagnið og slökknaði á honum þrisvar sinnum, leiðinlegt að lenda í þessu en hann tók þessu með stóískri ró. Við vorum svo komin upp í bústað rétt fyrir miðnætti, Daníel sofnaði í bílnum á leiðinni en Kolbrún fékk að vaka í smástund lengur og spila við mig og mömmu.

Við vöknuðum svo snemma á laugardeginum til að fara inn á Akranes í brunch á safnasvæðinu en þegar við komum þangað leit þetta meira út sem morgunverðarhlaðborð enda ekkert nema súrmjólk og brauð í boði og fyrir heilar 1300 krónur á fullorðinn og 600 á börn fannst okkur það ekki boðlegt. Öll hersingin fór því á Subway og þaðan heim til Sigga og Hörpu. Deginum eyddum við svo á Jaðarsbökkum þar sem var markaðs- og tívolístemmning. Ég, mamma og pabbi fórum svo örlítið fyrr og komum við í Krónunni á meðan Jói leyfði Daníel að fara í hoppukastala. Leiðin lá svo upp í bústað að grilla fyrir alla. Nanna og Frikki bættust svo í hópinn. Eftir að allir voru farnir sátum við Jói með mömmu og pabba og krökkunum við spil. Það er langt síðan ég hef hlegið svona mikið.

Á sunnudeginum sváfum við eins lengi og við gátum og tókum svo til. Við keyrðum Hvalfjörðinn heim en mamma og pabbi fóru upp í Borgarnes og svo á Akranes. Ég steinsofnaði þegar ég kom heim enda orðin ansi lúin eftir helgina.

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.07.2009 11:32:24 / rosabjorg

Þeytivinda

Barnið hreyfir sig ótrúlega mikið og í gær var allt á fullu. Mér leið eins og ég væri með þeytivindu í maganum. Það er hægt að standa í töluverðri fjarlægð frá mér og horfa á magann á mér ganga til en um leið og Jói leggur höndina á magann á mér róast barnið og hvílir sig. Hann hefur töfrahendur og á vonandi eftir að geta róað barnið eftir að það fæðist líka.

Við ætlum að sækja Daníel Örn snemma í dag og er hann svo kominn í sumarfrí þar til á þriðjudaginn eftir verslunarmannahelgi. Hann er farinn að hlakka til og getum við vonandi notað tímann vel til að gera eitthvað skemmtilegt öll saman. Við þurfum að skipuleggja okkur frekar vel þar sem Jói er að vinna á svo leiðinlegum tímum en það gengur alveg upp. Allir dagar verða hvort sem er eins, það er ekki eins og við þurfum að nota helgarnar sérstaklega.

Ég er komin með verkefni sem ég þarf að vinna í, verkefnið er að æfa mig í að biðja um hjálp. Ég þarf ekki að þrjóskast við og gera alla hluti sjálf, það eru sumir hlutir mikilvægari og þarf ég að gera hlutina á mínum hraða.

Á þriðjudaginn fórum við nokkrar stelpur úr mannauðsstjórnuninni saman í Bláa lónið og svo á American style. Við fórum úr þokunni á höfuðborgarsvæðinu í sól og blíðu í lóninu. Ég hafði tvíbókað mig þennan dag og missti því af hittingi heima hjá Hildi Ýr. Ég var bara búin að prenta það inn í hausinn á mér að við ætluðum að hittast á miðvikudeginum en ekki þriðjudeginum. Ég varð rosalega svekkt að missa af stelpunum þar sem það er svo langt síðan ég hitti þær. Ég mæti bara næst.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2009 23:32:55 / rosabjorg

Ég kemst þótt hægt fari

Ég kemst áfram á þrjóskunni þessa dagana, geng í hænuskrefum það sem ég þarf að komast en kemst þó. Svo lengi sem þreytan og verkir eru eingöngu líkamlegir kvarta ég ekki og get sinnt því sem ég þarf að sinna þó ég geri það á mínum hraða. Stundum kemur það þó fyrir að ég verð óbærilega þreytt en ég bý svo vel að góðu stuðningsneti og hef getað fengið aðstoð hjá mömmu og pabba með krakkana. Jói hefur svo meiri tíma í júlí svo að ég get gefið mömmu og pabba smá frí. Mamma er reyndar að fara í sumarfrí á sama tíma og Daníel og verður örugglega dugleg að bjóða fram aðstoð ef þarf.

Annars er sko nóg eftir af meðgöngunni, heilar ellefu vikur ef barnið kemur á réttum tíma og tek ég þetta með æðruleysi. Tíminn líður og bráðlega verð ég komin með krílið í fangið. Þótt ótrúlegt megi virðast að þá nýt ég þess samt að vera ólétt, hreyfingarnar, mæðraskoðun og allt sem fylgir er rosalega spennandi.

Ég fór með krakkana í dag í rólegheitunum að gefa öndunum brauð í Kópavogsdalnum og svo fórum við í langan göngutúr í Laugardalnum. Kolbrún Ýr fræddi okkur Daníel Örn um þvottalaugarnar en hún fór þangað núna í lok skólaársins með skólanum og fannst þær svo rosalega spennandi. Hún var annars komin með hausverk þegar við vorum á leiðinni heim sem endaði með því að hún kastaði upp. Hún þoldi illa ljós og lyktir. Svona hausverki hefur hún fengið nokkrum sinnum frá því að hún var fimm ára, svona eins og ég, mamma og amma. Týpískt mígreni sem ég vona að hverfi bara en verði ekki verra. Eftir uppköstin var hún fljót að jafna sig og var orðin rosalega góð í kvöld. Úff, ég veit svo innilega hvað henni hefur liðið illa og hefði ég glöð tekið þetta frá henni ef ég hefði getað.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2009 18:35:18 / rosabjorg

Planið

var að vera voða dugleg í sumar, ganga reglulega með Kolbrúnu í skólagarðana, fara á bókasafnið með strætó, fara í sund og svona ýmislegt með krökkunum. Ég er nefnilega yfirleitt bíllaus og ætlaði mér að reyna að gera hluti með þeim sem ég gæti farið á tveimur jafnfljótum eða stuttar strætóferðir. Í dag gerði ég svo tilraun, þarf nefnilega alltaf að ögra mér pínu og reyna aðeins meira en ég get. Ég fékk far hjá Jóa áður en hann fór í vinnuna niður í skólagarðana þar sem Kolbrún var búin að vera á leikjadegi. Ég sótti Daníel Örn að vísu fyrst, langaði að leyfa honum að vera með og svo bjóst ég ekki við að geta hlaupið upp í leikskóla ef við yrðum í einhverri tímaþröng. En við allavega ákváðum að fara í gönguferð um Kópavogsdalinn, skoðuðum allar vörðurnar sem skólarnir hafa gert, leikskólasúlurnar, fórum í stutta heimsókn í vinnuskólann, heilsuðum upp á endurnar og enduðum á að ganga upp meðfram Reykjavíkurveginum, framhjá Sunnuhlíð og upp á bæjarskrifstofur til mömmu. Ég gekk alla þessa leið í hænuskrefum og fékk beiðni frá Daníel um að labba aðeins hraðar oftar en einu sinni. Krakkarnir gátu þó hlaupið aðeins á undan mér og stoppað við vörðurnar eða á næsta róluvelli og beðið eftir mér. Þegar við komum svo í Hamraborgina og áttum bara eftir að ganga upp tröppurnar frá bensínstöðunni og upp að bæjarskrifstofum hlupu krakkarnir á undan mér og beint til ömmu sinnar, ég dröslaðist svo inn töluvert seinna. Ég hefði ekki fyrir mitt litla líf getað labbað heim svo að pabbi kom og sótti okkur. Krakkarnir eru síðan búin að vera eins og ljós í dag og hjálpað mér heilmikið, Kolbrún tók til og Daníel var stilltur (sem er bara töluvert).

En talandi um að vera stilltur að þá þurfti Daníel Örn að fara til leikskólastjórans í dag :( Hann Klifraði yfir girðinguna og í staðinn fyrir að stoppa þegar kallað var á hann tók hann á sprett, beint að götunni. Hann ætlaði bara heim. Þetta var mikið rætt á deildinni, hversu hættulegt þetta var o.s.frv. og næstu daga ætlar Daníel alltaf að vera með konu þegar hann er úti að leika.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2009 22:49:27 / rosabjorg

Sumarfrí

Loksins eru allar einkunnir komnar í hús og ég get farið að njóta þess að vera í sumarfríi. Öll námskeið búin í mannauðsstjórnuninni og nú er bara ritgerðin eftir að meistaragráðunni. Stefnan tekin að byrja á ritgerðinni í haust og rumpa henni af.

Ég fór annars í mæðraskoðun í dag, allt í fínu lagi fyrir utan að ég er orðin frekar lág í járni. Allt yfir 105 er ágætt en ég var dottin niður í 99. Ég þarf því að taka járn og fór beina leið í apótekið með miða með tveimur tegundum og bað um þá ódýrari. Sú sem afgreiddi mig sagði að járnið væri ekki til hjá þeim og að það væri ekki til hjá þeim sem flytja það inn heldur en hún fór samt í tölvuna til að tékka á stöðunni í öðrum apótekum Lyf og heilsu. Það var hvergi á skrá svo ég þarf að fara á stúfana í fleiri apótek og leita að járni. Það þarf ekkert endilega að vera til þar sem þetta er ekki til hjá þeim sem flytja þetta inn. Týpiskt fyrir ástandið í dag. Mér finnst vöruúrval yfir höfuð vera farið að minnka ótrúlega mikið svo þetta átti svo sem ekki að koma á óvart.

Kolbrún kom með í mæðraskoðun og fékk að fylgjast með. Hún var rosalega glöð að fá að taka þátt, fékk að hlusta á hjartsláttinn, lesa af mælinum hvernig járnið var og spurði út í allt sem var gert. Svo núna seinnipartinn sagði hún við mig að hún hefði fengið óskina sína uppfyllta, hann langaði alltaf svo í eitt systkini í viðbót.

Daníel á ennþá tvær vikur eftir þangað til hann fer í sumarfrí og er farinn að hlakka mikið til.

Jói fer varla í sumarfrí fyrir utan að hann tekur sér kannski eina og eina helgi og fyrsta fríhelgin hans er fyrsta helgin í júli. Þá var planið að fara norður í Fljótin þar sem Maja og Hjörtur ætla að halda upp á tvöfalt þrítugsafmæli en ég treysti mér eiginlega ekki til þess. Ég er frekar svekkt að komast ekki þar sem mér finnst þetta svo spennandi hugmynd að þau ætlið að halda upp á afmælin sín svona. Það verður ógeðslega gaman hjá þeim.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2009 09:55:45 / rosabjorg

17. júní

Eins og undanfarin ár fórum við á Rútstún til að halda 17. júní hátíðlegan. Ég og krakkarnir fórum til mömmu og pabba og vorum samferða þeim í skrúðgönguna frá MK en Jói keyrði bílinn í Kársnesskóla þannig að við þyrftum ekki að labba alla leið til baka. Stefnan var sú að labba öll saman frá mömmu og pabba upp í MK, þ.e.a.s. Olga og stelpurnar, ég og krakkarnir og mamma og pabbi. Pabbi tók það eiginlega ekki í mál svo að hann keyrði mig upp í MK og afgangurinn labbaði. Þetta var náttúrulega rosalega sniðug hugmynd en stoltið mitt þrætti fyrir það að vera keyrð þegar allir aðrir myndu labba. Ég er viss um að við hefðum verið þrisvar sinnum lengur á leiðinnni ef ég hefði dröslast með. En ég gekk skrúðgönguna án vandræða, í rólegheitunum. Krakkarnir voru svo heppnir að þeim voru gefnar tvær (loftlitar) blöðrur. Þetta varð að vísu til pínu vandræða þar sem þau voru þrjú en vakti þó lukku og gátum við spilað þetta með því að skiptast á. Við sátum svo á túninu í góða veðrinu og horfðum á skemmtiatriðin sem voru óvenju skemmtileg þetta árið. Krakkarnir voru voða hrifnir af Söngvaseið og langar mikið að fara að sjá leikritið. Við lögðum ekki í að fara í hoppukastala eða önnur tæki enda klukkutíma röð fyrir 1 mínútu ekki spennandi. Við biðum þó í röðinni til að leyfa krökkunum að fara í Veltibílinn áður en við fórum heim enda röðin aðeins farin að minnka. Nanna (sem kom og hitti okkur á Rútstúni) sat aftur í  hjá Kolbrúnu og Jói var með Daníel fram í. Einar sem stjórnar þessu setti bílstóla fyrir krakkana og fannst þeim þetta rosalega spennandi. Daníel hló allan tímann og hefði sko viljað miklu, miklu meira. Við fáum fleiri tækifæri.

Við hittum óvenju fáa þetta árið þó svo að fjöldinn hafi verið ótrúlegur. Við sátum reyndar á túninu allan tímann og horfðum á skemmtiatriðin og röltum lítið um svæðið. Við hittum þó einhverja sem er alveg stór hluti af því að fara á Rútstún á 17. júní. Þetta er svona eini dagurinn á árinu sem maður hittir gamla vini með börnin.

Við fórum svo heim til mömmu og pabba í síðbúið kaffi/snemmbúinn kvöldmat og vorum svo komin heim um hálf átta leytið. Þá dreif Kolbrún Ýr sig aðeins út en Daníel rotaðist á sófanum og færðum við því hann bara inn í rúm og svaf hann alveg til klukkan átta í morgun.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2009 23:20:36 / rosabjorg

Langt síðan síðast

Lífið gengur sinn vanagang.

Kolbrún er búin með 2. bekkinn og fékk frábærar umsagnir í öllum fögum. Henni gengur vel í skólanum, á góða vini og er öll af vilja gerð að gera vel. Hún hefur fengið mikinn stuðning í lestri og stærðfræði í vetur og sýnir mikil framför. Við ætlum að halda áfram lestrinum í sumar og fórum í dag á bókasafnið og ætlum að taka þátt í sumarlestrinum. Hún er byrjuð í skólagörðunum. Hún á þennan garð og vill sem minnsta hjálp þiggja og gerir allt sjálf. Ég er búin að fara með henni að gróðursetja kartöflur, blómkál og spergilkál, pabbi er búin að fara með henni að gróðursetja tvær tegundir í viðbót af grænmeti og mamma fór með henni í dag til að gróðursetja tvær í viðbót. Pabbi hennar ætlar svo með henni á morgun en ennþá á eftir að gróðursetja eitthvað. Hún vökvar svo á hverjum degi samviskusamlega og ber könnuna alveg sjálf þó svo að henni bjóðist hjálp. Þetta er hennar garður, var ég búin að segja það. Hvort að við hin fáum að hjálpa henni að borða grænmetið kemur svo í ljós í haust.

Daníel er búinn að vakna frekar fúll flesta daga síðustu vikur, vill bara sofa lengur og segir á hverjum degi að í dag sé frí. Hann er búinn að vera frekar erfiður í skapinu, fúll á móti og hlustar ekki. Hann er sérstaklega erfiður við mig en síðustu vikur hefur hann verið að sýna sömu takta í leikskólanum. Ég er ekki viss hvað veldur en held að það hljóti að hafa áhrif hvað pabbi hans vinnur mikið. Hann fer í sumarfrí 6. júlí og verður vonandi ánægður með komast í frí.

Þau eru bæði voða spennt fyrir litla barninu og vilja mikið vera að tala við bumbuna og finna hreyfingar. Þau eru á báðum áttum hvort þau eignast bróður eða systur, fer eftir því hvaða dagur er.

Bumban stækkar annars voða mikið og sést munur dag frá degi. Bumban mælist stærri en meðaltalið og veit ég ekki hvar þetta endar. Næsta mæðraskoðun er 22. júní en þá verð ég komin rétt rúmar 28 vikur á leið, mikið líður tíminn hratt.

Jói vinnur og vinnur voða mikið en hann tekur sér aðeins frí í sumar og reynum við að nýta það sem best. Allt planað þegar hlutirnir gerast.

Við eignuðumst litla frænku 23. maí og var hún skírð 7. júní, Alexía Líf. Thelma Líf stóra systir hennar var búin að nefna hana þessu nafni frá því að hún vissi að hún ætti von á systur og svo þegar hún kom í heiminn átti nafnið svona líka vel við hana. Thelma Líf hélt svo á henni undir skírninni með hjálp Brynjars og Sæþórs stóru bræðranna en ég og Hjördís (móðursystir barnanna) vorum skírnarvottar.

Ég og Jói erum annars búin að vera að hugsa um nöfn en erum einhvern vegin alveg tóm, ekki að við séum að falla á tíma.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2009 23:45:48 / rosabjorg

Líkaminn

Þar sem ég er búin til úr afgöngum er líkaminn á mér ekkert alveg að höndla það að vera óléttur þessa dagana. Ég ryksugaði sameignina á fimmtudaginn og lá uppi í sófa það sem eftir var dags. Á laugardaginn var ég svo með krakkana ein þar sem Jói var að vinna eins og venjulega og sagði ég því bara pass við því að fara út að taka til með öllum öðrum sem búa hér á svæðinu. Á hverju vori er hreinsunardagur og fara þá allir út og tína rusl, sópa, smúla o.s.frv. til að gera fínt. Leigðir eru bílar til að sópa bílastæðin og línur málaðar upp á nýtt ef þarf. Ég lét mig hverfa enda hef ég alveg ágætis afsökun fyrir því að taka ekki þátt, ég geri það bara á næsta ári. Ég fór því heim til mömmu og pabba eins og ég geri venjulega á laugardögum. Teknar voru myndir af mér og Olgu eins og var gert þegar við vorum óléttar af Daníel og Thelmu. Ég er núna komin rúmar 22 vikur og hún rúmar 37 en 2005 var hún komin 27 vikur og ég 39 vikur. Ég átti svo Daníel daginn eftir að myndin var tekin svo við vorum að grínast með það að hún færi nú bara vonandi af stað en það gekk ekki alveg eftir. Það á annars að hreyfa við belgnum hjá henni á þriðjudaginn og vonandi fer daman bara að koma í heiminn.

Ég er annars búin að fá eina einkunn og þarf ekki að fara í endurtekt eins og ég var farin að halda. Löng saga þar á bakvið sem ég nenni ekki að vera að væla yfir, þetta er bara búið. Ég fer svo í próf á miðvikudaginn og þarf að fara í sjúkrapróf í byrjun júni af sömu ástæðu og hitt prófið klúðraðist.

Daníel spurði mig annars í dag hvort að við ættum ömmu sem héti Bogga og sagði ég honum að ég hefði átt ömmu sem hefði heitið Bogga en hún dó árið 1993. Ég held stundum að amma hafi samband við hann en þegar hann var lítill tók hann upp á því að kalla systur sína Bogga en það er engan veginn stytting á Kolbrúnu Ýri. Hann fór svo að segja mér frá því að hún væri hjá Guði núna. Ég veit að hann dreymir alveg rosalega mikið og kannski er hann að dreyma ömmu, hver veit.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2009 20:08:57 / rosabjorg

Krakkarnir

Nú er Kolbrún Ýr komin með smá hita og kvartar undan verk í hálsinum og höfðinu. Hún bað sjálf um að fá að fara upp í rúm klukkan hálf átta en er ekki sofnuð þar sem bróðir hennar er ennþá að brölta. Á meðan ég var að sinna Kolbrúnu og koma henni í háttinn fór Daníel inn á bað. Þegar ég kom þangað blæddi úr hökunni á honum og efri vörinni. Hann hafði náð í rakvélina mína og vildi endilega læra að raka sig sérstaklega þar sem hann sá að hann var kominn með smá skegg. Svo dugði ekki að þurrka blóðið heldur þurfti hann að fá plástur og er hann því með barbie plástur á efri vörinni og Cars plástur á hökunni. Ég geri ekki ráð fyrir því að ég eða pabbi hans fáum að taka plástrana af áður en hann fer í leikskólann á morgun, það kemur í ljós.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2009 11:29:35 / rosabjorg

mæðraskoðun

Ég fór í mæðraskoðun í morgun og bauð mömmu með mér. Ég þarf að fara að taka því rólega og taka prófalestur með almennri skynsemi. Prófalesturinn hjá mér hefur laskast örlítið þar sem ég er farin að finna fyrir álaginu. Ég klúðraði prófinu síðasta fimmtudag og mun ekki fara í prófið á morgun í stefnumiðaðri stjórnun heldur taka sjúkrapróf í byrjun júní. Ég tek þetta bara í rólegheitunum. Stefni að því að geta farið í próf í stjórnun starfsþróunar 13. maí en það er heimapróf þar sem ég hef 8 klukkutíma til að klára og skila verkefni.

Mæðraskoðunin kom annars vel út, hjartsláttur barnsins var 140, blóðþrýstingurinn minn 110/70 og legbotninn mældist 23,5 cm. Svakalega fínar tölur allt saman. Ég er að skipta um blóðþrýstingslyf, hætti á atenolol og fer að taka trandate. Ég er komin með gömlu skýrslurnar mínar og nýjustu skýrsluna sem fylgja mér það sem eftir er meðgöngunnar. Svo á ég tíma aftur eftir þrjár vikur eða 25. maí.  

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 28
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 67756
Dagsetning
7. febrúar 2012
Klukkan
RSS tengill